Vel heppnuð kynning í Erninum

Reiðhjólaverslunin Örninn bauð í kvöld áhugafólki um þríþraut og hjólreiðar til kynningar á nýju Speed Concept hjólunum frá TREK.

p1020169.jpg

Nú þegar er búið að panta 4 slík hjól til landsins en þessi hjól eru hlaðin nýjungum og bætingum er hreinlega lofað þeim sem hrista duglega úr bauknum. Kynningin hófst formlega kl. 19 þegar Pétur fór yfir helstu nýjungar í hönnun hjólanna og fjölmargir gestir gæddu sér á veitingum á meðan. Margar þríþrautarhetjur voru mættar á svæðið og þá sérstaklega úr hinu nýja og geypiöfluga liði 3SH. Gestir voru ánægðir með þetta framtak Arnarins og töldu búðina bæta vel upp fyrir dapra jólaskreytingu. Örninn ætlar að hafa allar stærðir af ódýrustu hjólunum í búðinni næsta vor en hjóla.blog.is hvetur þríþrautarfólk til að kynna sér hvað er í boði af þríþrautarhjólum og gera tímanlegar pantanir því það hefur orðið algjör sprenging í fjölda þríþrautariðkenda í vetur og ljóst að slegist verður um hjólin næsta vor.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband