Fjallahjólakeppnin á Smáþjóðaleikunum

Fjallahjólakeppnin á Smáþjóðaleikunum verður haldin föstudaginn 3. júní en götuhjólreiðarnar fara fram 31. maí og TT 2. júní. Þær kepnnir eru nokkuð svipaðar því sem við eigum að venjast en hinsvegar má segja að fjallahjólakeppnin verði ný raun fyrir okkar fólk.

xco_lie_2011.jpg

Meðfylgjandi mynd er hæðarprófíll af brautinni (hægt að smella á tvisvar til að sjá stærri). Hún er 5km að lengd og er að mestu skógarstígar í Schellenberg. Hjólaðir verða 6 hringir, samtals 30 km sem er auðvitað ekki löng vegalengd. Þetta hljómar því eins og þægilegar föstudagsfjallahjólreiðar í fallegu umhverfi. Þegar hæðarprófíllinn er skoðaður nánar kemur í ljós að hækkun í hverjum hring er 282m og samtals hækkun því næstum 1700m. Til samanburðar þá er heildarhækkun í Öskjuhlíðar- og Rauðavatnskeppnunum um 350-400m og þykir mörgun nóg um. Það er því ekki víst að íslensku keppendurnir nái að njóta fegurðarinnar á leiðinni mikið með púlsinn í botni í 25-30stiga hita í 2 tíma. 13 konur og 28 karlar eru skráðir í forskráningu í keppnina. Brautin var vígð síðasta sumar þegar meistarmót Liechtenstein í fjallahjólreiðum fór þar fram. Meðfylgjandi er kort, úrslit og myndir frá þeirri keppni. Þar má m.a. sjá menn leiða hjólið niður brekku en það hefur hingað til ekki verið talið bæta tímann mikið að labba með hjól niður brekkur. Það er sennilega einhver góð ástæða fyrir því sem gæti verið drulla. 


Gæða æfingar

Fyrir veturinn í ákvað ég í fyrsta skipti að skrifa niður æfingaplan. Það sem rak mig helst af stað í þetta var einfaldlega sú staðreynd að í vetur hef ég ekki alveg sama tíma aflögu og áður á kvöldin vegna breyttra aðstæðna heimafyrir og því var bara eitt í stöðunni. Aðlagast! Ég fjárfesti í powermæli í haust sem ég ákvað að ég yrði að nýta sem allra best við æfingarnar. Án þess að fara ítarlega í æfingaplanið sjálf að þá er ég í fyrsta skipti farinn að gera interval æfingar að vetri til og þar spilar áður nefndur powermælir stórt hlutverk.

SRM Á bakvið svona æfingar eru býsna flókin fræði og er hægt ýmsan fróðleik á netinu ásamt þónokkru magni af bókum sem hægt að er að nálgast með einföldum hætt í gegnum netið. Eftir að hafa ráðfært mig við fróða einstaklinga og farið í gegnum mikið efni á netinu að þá barði ég saman prógramm og mig langar til þess að deila einni svona æfingu með ykkur. Þetta er æfinga sem ég hjóla inni á trainer og styðst nær einöngu við power. Þetta er dæmigerð svona interval æfing eins og ég nefni hér að ofan. Markmiðið með æfingu sem þessari er að hækka mjólkursýruþröskuldinn en til þess að gera það er hjólað sem næst þröskuldinum í ákveðið langan tíma, svo slakað á. Sú æfing sem ég deili með ykkur hér hefur ákveðna uppskrift sem hljómar svona: 3x(8 LT + 4 50%). Fyrir þá sem ekki skilja þetta þá þýðir þetta þrjú intervöl á þröskuldi með fjögurra mínútna millibili þar sem hjólað er á 50% álagi af þröskuldi til þess að jafna sig. Þetta þýðir að líkmaninn er þarna að fá 24 mínútur af álagi sem er mjög nálægt mjólkursýruþröskuldinum.

 

Til þess að þessar æfingar skili tilsettum árangri er mjög mikilvægt að taka próf með ákveðnu millibili til þess að sjá hvort að þér sé að fara fram eða aftur. Ef allt gengur að óskum og þér fer fram. Nú þá er nauðsynlegt að breyta intervölunum og hækka álagið sem nemur bætingunni. Svona próf ætti að framkvæma á 4-5 vikna fresti og þá helst í lok rólegrar viku.

powertap_sl_computer_and_hub.jpgMeð því að smella á linkinn hér fyrir neðan getði þið auðveldlega skoðað æfinguna. Hún byrjar á stighækkandi upphitun sem er alltaf eins, eða 15 mínútur. Síðan fer ég beint í intervölin og ættu þau að sjást býsna vel á línuritinu. Ef þetta er skoðað nokkuð grant má glögglega sjá að púlsínn er nokkuð hærri í seinasta intervalinu heldur en því fyrsta en þó er “power outputtið” (krafturinn sem fer í pedalana) svo til sá sami.

 

Ef það vakna einhverjar spurningar í kringum þetta að þá vil ég endilega hvetja ykkur til þess að varpa þeim fram í athugasemdum hér að neðan.

Æfinguna má nálgast með því að smella hér.

 

Pétur Þór Ragnarsson


Góðar fréttir af styrkjamálum

samfelagssjodur.jpgLandsliðshópurinn fékk nýverið styrk úr Samfélagssjóði Landsvirkjunar að upphæð 100.000. Grunnstoð samfélagssjóðsins er efnahagsleg, umhverfisleg og félagsleg sjálfbærni og hjólreiðar falla mjög vel undir þessa skilgreiningu. Hjólreiðanefnd ÍSÍ þakkar Landsvirkjun kærlega fyrir. Nú er verið að vinna í öðrum styrkjamálum og vonandi verður nýr styrktarsamningur kynntur í lok mánaðarins. Fylgist með hér.

Æfingar um jólin

Æfingar um jólin hafa gengið ágætlega. Veðrið fór að verða til leiðinda þannig að útiæfingar breyttust nokkuð. Það er mjög erfitt að hjóla lengi þegar það er hríð eða púðursnjór vegna þess að snjór fer í tannhjólin og það verður erfitt að halda keðjunni á tannhjólunum í átaki.

25des.jpg

Fyrir digga lesendur síðunnar sem staddir eru erlendis koma tvær myndir með þessari stuttu færslu. Annars vegar er það mynd frá æfingu í gær (jóladag) sem tekin var í Heiðmörk en þá var kominn sæmilegur snjór. Hin myndin var svo tekin á æfingu í dag. Þá var allur snjór farinn og standard rok og rigning í borg bleytunnar. Ef meðfylgjandi mynd prentast vel má sjá að helsta veðurathugunartækið á Reykjavíkurflugvelli er lárétt í rokinu.

26des.jpg

Meðalhraði á æfingunni eftir 60 mínútur var 28,5km/klst á fjallahjólum. Ekki fæst uppgefið hver meðalhraðinn var þegar búið var að hjóla í mótvindi líka


Gleðileg jól

heidmork.jpgHjóla.blog.is óskar lesendum gleðilegra hjólajóla. Einhverjir hafa fengið eitthvað fallegt hjóladót í skóinn og aðrir fá í kvöld. Sjáumst á hjólinu. Meðfylgjandi mynd var tekin á æfingu í morgun í Heiðmörk þegar máninn var að hverfa í hríðina.

Ætlarðu að keppa í Tour de france með Lance?


Spurning sem ég hef fengið ótrúlega oft. Sérstaklega í fjölskylduboðum frá forvitnum frændum og frænkum. Þó ég gjarnan vildi að þá er það því miður víst ekki í boði. Hjólasportið sem slíkt á Íslandi er ekki stórt. En þó er þetta ein stærsta almenningsíþróttin, en sem keppnisíþrótt á hún nokkuð í land. Þó hefur verið góður vöxtur undanfarin ár og mætti nefna að í Bláalónsþrautinni sem er haldin ár hvert í byrjun júní voru skráðir 374 keppendur sem var þátttökumet. Þarna mætir fólk á öllum aldri og ólíkt af getu með það að markmiði að hjóla 60km leið úr Hafnarfirði í Bláalónið um Djúpavatnsleið á sem skemmstum tíma. Þó er það alltaf svo að ár hvert fer fjöldi fólks þessa leið sér bara til skemmtunar og til að upplifa stemmninguna í lóninu eftir mótið sem er vægast sagt frábær!

 

 TourÉg er ekkert allt of viss um að obbi þátttakenda þar viti neitt endilega neitt meira um hvernig keppnishjólreiðum erlendis sé háttað betur heldur en frændfólk mitt og það er bara eðlilegt þar sem umfjöllun um hjólreiðar í íslenskum ljósvakamiðlum er afar lítil. En það er nefninlega ekki þannig að maður taki bara upp símann, hringi til Frakklands og skrái sig í Túrinn (eins og hann er gjarnan kallaður). Í hjólreiðum er nefninlega atvinnumennska og þó maður nái svo langt að þyggja laun fyrir hjólreiðar er enn ekki víst að maður upplifi það að standa start línunni í Túrnum. Heldur er það þannig að í hjólreiðunum eru deildir. Aðeins 15 lið úr efstu deild eru með tryggt sæti í Túrnum. Önnur lið í neðri deildum þurfa að puða allt árið um kring með það eitt að markmiði að ganga í augu skipuleggjenda Túrsins í þeirri von um að fá boð þangað, en árlega fá einungis 22 lið að taka þátt.

Gott og vel. Lítið mál. Bara koma sér í eitt af toppliðunum þá! Aldeilis ekki. Því aðeins níu bestu af 25-27 hjólurum í hverju liði fá að þann heiður að fá sæti í liðinu. Þannig að þetta er ekkert sem er hlaupið að. Án þess að vera of svartsýnn fyrir hönd íslenskra hjólara þá held að ég geti fullyrt að þetta sé ekki að fara að gerast hjá neinum íslendingi alveg í bráð.

En þetta er draumur allra hjólreiðamanna. Að fá að þjást á hjóli í rúmlega 3000km á 21 degi um gjörvallt Frakkland í steikjandi hita í júlí mánuði. Af þeim 198 hjólurum sem fá ða taka þátt er aðeins lófafylli sem á séns í að vinna. Og þetta vita þeir fyrirfram.

Ég mun fara nánar út það í annarri færslu síðar en það er nefninlega líka þannig, kannski líkt og í fótbolta, að hjólreiðar er liðakeppni. Ekkert endilega sterkasti maðurinn sem vinnur heldur sterkasta liðsheildin. Menn verða að vinna saman því annars vinnst ekkert!

Jóla-hjólakveðjur,
Pétur Þór


Gillette World Sport 2010 - HTC-Columbia Women


Vel heppnuð kynning í Erninum

Reiðhjólaverslunin Örninn bauð í kvöld áhugafólki um þríþraut og hjólreiðar til kynningar á nýju Speed Concept hjólunum frá TREK.

p1020169.jpg

Nú þegar er búið að panta 4 slík hjól til landsins en þessi hjól eru hlaðin nýjungum og bætingum er hreinlega lofað þeim sem hrista duglega úr bauknum. Kynningin hófst formlega kl. 19 þegar Pétur fór yfir helstu nýjungar í hönnun hjólanna og fjölmargir gestir gæddu sér á veitingum á meðan. Margar þríþrautarhetjur voru mættar á svæðið og þá sérstaklega úr hinu nýja og geypiöfluga liði 3SH. Gestir voru ánægðir með þetta framtak Arnarins og töldu búðina bæta vel upp fyrir dapra jólaskreytingu. Örninn ætlar að hafa allar stærðir af ódýrustu hjólunum í búðinni næsta vor en hjóla.blog.is hvetur þríþrautarfólk til að kynna sér hvað er í boði af þríþrautarhjólum og gera tímanlegar pantanir því það hefur orðið algjör sprenging í fjölda þríþrautariðkenda í vetur og ljóst að slegist verður um hjólin næsta vor.


Æfingin í dag

Æfingin í dag var svipuð og síðasta sunnudag. Mættir voru Hákon Hrafn og Pétur. Núna var byrjað kl 7:25 og byrjað á efri byggðum í mótvindi og svo öll nes þrædd í meðvindi og Heiðmörkin heim í mótvindi. Í norðanátt fæst svokallað Esju-skjól í efri byggðum og í Heiðmörk og þessvegna var valið að hjóla á móti vindi þar og reyna að fá meiri meðvind á nesjum (Gufunes-Grótta-Kársnes-Arnarnes-Álftanes-HFN með sjónum). Æfingin tók tæpa 5 tíma og meðalhraði var um 22,4 km/klst. Æfingin var aðeins erfiðari en síðasta sunnudagsæfing þrátt fyrir lægri meðalhraða og eru tvær ástæður fyrir því, annars vegar um 8 gráðum kaldara og mun meiri vindur.

trek.jpg

 

Annars bárust fréttastofu myndir frá Wikileaks sem okkur skilst að tengist atburði á morgun milli 18 og 20. Meira um það annað kvöld.


Meira um fallegasta jólaskrautið

Mikill hiti hljóp í keppnina um fallegasta jólaskrautið eftir að ljóst varð að Markið væri að rústa keppninni. petur.jpg Hjólabúðirnar hafa aldeilis tekið við sér og starfsmenn hafa jafnvel verið að koma með skraut að heiman til að bæta um betur. Reyndar hljóp líka illt í keppnina þegar Hafsteinn sagðist vera höfundur skrautsins sem prýðir Markið, hann ku víst hafa hannað það og sett upp jólin 2003. Engir pappírar hafa samt fundist um það. Pétur í Erninum hringdi í vini sína í fjöllistahópnum gusgus og fékk þá til að koma með listræna útfærslu af jólaskrauti til að ná forystu í keppninni. jólaskrautið í Erninum Tíðindamaður hjóla.blog.is hafði spurnir af þessu og náði myndum af því þegar Pétur hringdi og einnig þegar skrautið var tilbúið. Vissulega listrænt hjá þeim en kannski ekki alveg það fallegasta. Hjólameistarinn í Kópavogi hafði einnig samband við fréttastofuna og vildi meina að hjá honum væri fallegasta jólaskrautið. Hjólameistarinn hefur verið þekktur fyrir minimalisma og engin breyting varð á því við skreytingu hans þetta árið. 

hjolameistarinn.jpg

Heyrst hefur að starfsmenn Marksins hafi brugðist við þessari óvæntu samkeppni og muni koma með nýtt útspil í næstu viku. Meira um það hér fljótlega.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband